Jólaföndur Foreldrafélags Ártúnsskóla

Jólaföndur Foreldrafélags Ártúnsskóla verður haldið laugardaginn 30. nóvember frá kl 10 – 13 í sal grunnskóladeildar skólans.
Skreyttar verða piparkökur, málaðar jólamyndir og fleira skemmtilegt sem kemur okkur í jólaskap. Glassúr í ýmsum litum verður á staðnum og málning til að mála með.
Nemendur í 6. bekk verða einnig með sinn árlega kökubasar.
Jólaföndrið er að sjálfsögðu í boði fyrir bæði skólann og leikskólann.
Mikilvægt að allir mæti með pening þar sem ekki verður posi á staðnum.
Sjáumst í jólastuði!
Stjórn foreldrafélagsins